PVC blanda - RAU-FIBRO

Gluggavinir – Ný kynslóð glugga fyrir íslenskar aðstæður

Hjá Gluggavinum bjóðum við ekki upp á hefðbundna (úrelta) plastglugga úr venjulegu PVC efni.
Við sérhæfum okkur í næstu kynslóð gluggatækni frá REHAU – þróaðri hybrid gluggalausn sem sameinar styrk, einangrun og endingargæði sem henta íslensku veðurfari.

RAU-FIPRO® – Háþróað hybrid efni framtíðarinnar

RAU-FIPRO® er einkaleyfisvarið trefjastyrkt hybrid efni þróað af REHAU.
Efnið sameinar sérstakar glertrefjar og hágæða PVC húðun til að skapa einstaklega sterka og stöðuga gluggaprófíla — án hefðbundinna stálstyrkinga inni í karminum.

Þessi tækni hefur verið þróuð með innblæstri frá iðnaði þar sem gerðar eru gríðarlegar kröfur um styrk og léttleika, meðal annars í flugvélaiðnaði og akstursíþróttum eins og Formula 1.

Af hverju RAU-FIPRO®?

Einstakur styrkur án stáls

RAU-FIPRO® er mun sterkara en hefðbundið PVC og getur keppt við ál og trefjagler hvað varðar styrk og stöðugleika.

Vegna þess að engar stálstyrkingar eru inni í gluggakörmunum:

  • myndast engin ryðvandamál
  • engin hætta er á ryðlitum niður veggi hússins
  • minni hitabrýr myndast
  • betri hitaeinangrun næst

Hannað fyrir íslenskt veðurfar

RAU-FIPRO® prófílar eru sérstaklega vel til þess fallnir að standast krefjandi íslenskar aðstæður:

  • miklar hitasveiflur
  • raka
  • vind
  • frost
  • UV geislun

Gluggarnir rotna ekki, tærast ekki og mygla ekki.
Þeir þurfa hvorki málningu né sérstakt viðhald til að halda útliti sínu og eiginleikum í áratugi.

UV-vörn í yfirborðinu tryggir að litir fölni ekki með tímanum.

Framúrskarandi hita- og hljóðeinangrun

RAU-FIPRO® gluggakerfi frá REHAU bjóða upp á einstaklega góða hitaeinangrun án málamiðlana.

Með hljóðeinangrandi gleri geta gluggarnir einnig myndað mjög áhrifaríka vörn gegn utanaðkomandi hávaða og skapað rólegra og þægilegra umhverfi inni á heimilinu.

Litir og áferðir

Við bjóðum upp á fjölbreytt úrval:

  • lita
  • áferða
  • viðarlíkinga
  • ál-áferða


Hægt er að velja:

  • mismunandi lit að innan og utan
  • eða sama lit á báðum hliðum

Sérsmíðaðar lausnir

Hver viðskiptavinur hjá Gluggavinum hefur sínar eigin þarfir og því eru möguleikarnir á sérpöntunum nánast endalausir.

Við bjóðum fjölbreyttar hönnunarlínur:

  • nútímalegt útlit
  • klassíska hönnun
  • “aldamóta” stíl
  • sérlausnir fyrir einstök verkefni

Hvort sem um er að ræða íbúðarhúsnæði, sumarhús eða stærri atvinnuhúsnæði leggjum við áherslu á gæði, útlit og lausnir sem endast