Arlanga Wood – Álklæddir timburgluggar
Gluggavinir – Ný kynslóð glugga & hurða fyrir íslenskar aðstæður
Útihurðir – Hönnun, öryggi og einangrun fyrir íslensk heimili
Arlanga Wood álklæddir timburgluggar sameina hlýlegt útlit timburs að innan og endingargóða álklæðningu að utan. Útkoman er gluggakerfi sem sameinar nútímalega hönnun, hönnun sem er ein sú vinsælasta í nýbyggingum á íslandi.
Gluggarnir eru framleiddir með áherslu á gæði, styrk og nákvæma vinnslu þar sem hvert smáatriði skiptir máli. Að innan nýtur þú náttúrulegrar og hlýrrar timburáferðar sem skapar fallegt og notalegt umhverfi, á meðan álklæðningin að utan ver gluggana gegn vindi og veðrum með lágmarks viðhaldi.
Hvort sem um er að ræða nýtt hús, viðbyggingu eða endurnýjun eldri glugga, þá bjóða Arlanga Wood gluggarnir upp á tímalausa lausn þar sem fagurfræði og ending fara saman.